Bókastaðir

An Old Norse Library
Chapter 16

Nu er fra þui ath seighia ath Þidrek og Hilldibrandur rida vt af Bern ij samann med hauka sina og hunnda sa skóg sier til skiemtanar med vapnum sinumm. Nu fleygia þeir sinum haukumm og sla lausum sínumm hundumm. Enn er Þidrek elltir einn hiørtt þa sier hann hvar hleypur einn dvergur. Þidrek hleypur þegar epter dverginumm og ædur hann kiemur i sinn gamma fær Þidrek tekit sinne hende yfer hans hæls og hnykkir honum til sín i sødulinn. Þetta var Alfrigg hinn mikli stelari er allra dverga var hagastur. Þa mællte dvergurinn herra, ef egh skal leysa migh og mitt lif af ydur þa skal egh visa þier þar til er vera skal sua mikit gull og silfur og allskonar gersimar ath þinn fader man ei eiga halft lausa fee vid þetta. ok eigu þetta fee tveir menn. er þat kona og heiter Hilldur og hennar madur heitir Grímur og er hann yfrid hraustur og iafnast hann vid xij menn ath afli. enn hans kona er þo sterkari. enn bædi eru þau grimm og ill. ok hann hefuir sverd þat er Nalhringur heitir þat er allra sverda best ok þat sama slo egh minne hennde. ok ei muntu fa sigur nema þu fair adur hans sverd. ok er þat meira frægdar verk enn taka minn hinn skamma bvk og hinn laga legg ath sækia þetta mikla fee vid dreingskap og þinn førunautur. Þidrek svarar. Alldrei kiemur þu lifs af minne henndi fyrr enn þu sver þess ath þu skallt koma Nalhring mier j hønd þenna dagh. og siþan skalltu mier til vijsa hvar þat herbergi er sem þu hefer mier fra sagt. ok sua giorer dvergurinn ok nu lætur Þidrek hann lausann. enn hann hleypir ath fuglumm og dyrumm allann dag til nóns. ok epter nón þa er Þidrek og Hilldibrand staddur vid eina fialls hlijd og nu kiemur þar Alfrigg med Nalhring og færer Þidrek og mællte. See her j þessare fiallz hlijd vid einn hamar þar er þetta jardhvs er egh hefui þier frá sagt. Tak þar nv gersimar þviat ærit er til. enn vist dreingiligha til vnnit ef þid náid. enn alldrei siþann skulu þid na mitt valld medann egh lifui þo ath þid lifuid tua manns alldra ok þvi næst er þessi dvergur allur i brottu. Nu stigur Þidrek og Hilldibrandur af sinumm hestumm og binnda þa. ok nv bregdur Þidrek þessu sverdi er dvergurinn hafde fært honum og þat mælltu þeir bæder ath alldrei sa þeir væuna sverd og biturligra.

Chapter 17

Nu er fra því ath seigia ath þeir gánnga i fiallshlídina ok þar til ath þeir finna þar eitt jardhvs. ok nv binda þeir fast sina hesta og taka vpp sina hialma og spenna sinumm brynniumm og brynhosumm og fyrer sigh skiota þeir sinumm skiolldumm. ok nu geingur Þidrek inn j jardhúsith alldreingiligha og Hilldibrand þeghar efter honum. Enn er þetta sier hinn sterki berserkur Grimur ath hermenn eru komner i hanns hvs þa tekur hann þegar til sinnar vapna kistu og missir sverdz síns og kiemur honum nv i hug ath stolid mun hafua Alfriggur dvergur hinn mikli stelari. þreif hann siþann af elldinum eitt trie loganda og rædur j móte þeim og berriast þeir þeghar allhraustligha. enn Hilldibrandur finnur ei fyrr enn Hilldur hefuer spennt suo fast vmm hanns hals ath ecke ma hann vid sporna og nu sviptast þau alldreingiligha lánga hríd þar til ath Hilldebrandur fellur og Hilldur sa hann ofann og vill binnda hann. ok suo fellur fast spenner hun vmm hans arma. ath blód stöckur vnndan hvorium nagli ok suo fast setur hun bæda sina hnefa fyrer hans brióst ath hann fellur miog suo i aungvit. þa mællti Hilldibrandur til sijns fóstra. herra Þidrek sagde hann dugi mier nv þui alldrei fyrr kom egh j slijka mannraun. Nu svarar Þidrek ad wisu skal ek dugha þier ef egh má betur og ei skal egh þola fyrer einnar konu skylld ath minn fóstri og hinn besti vin hafui suo stora naud edur naligha bana. og i þessari svipan hoggur Þidrek af Grim høfudit. ok nu hleypur hann þar til er hanns fóstre er og hoggur Hilldi j tuo hluti. enn svo er hun fiolkunnig og mikit troll i sinni natturu, ath hennar hluter hlupu samann sem hun være heil. þetta þikker Þidreki furda mikil og hoggur nv annat sinn á hennar býk. fer allt á somu leid og fyrr. ok nu mællte Hilldibrandur. stig þinum fæti millumm hennar høfudlutar og fótalutar og muntu svo fyrerfara þui traulli. ok nu j þridia sinn høggur Þidrek hana j tvo lýte og nv stigur hann sinumm fæti millumm hlutanna og er þa daudur hinn nedri, enn hofudluturinn mællte. Mætte Grimur suo hafa fyrerkomet Þidrek sem egh Hilldibranndi þa feingim vid sigur og fellur nv sinn vegh hvor luturinn og spratt nv Hilldibrandur vpp og mællte. Víst veitter þu mier nv sem opttar mikit lid sem Gud þakki þier. Nu tóku þeir gull og silfur og allskonar gersimar suo ath ei þikker þeim dvergurinn hafa logit ath sier. ok þa hitta þeir einn hialm þann er þeir haufdu alldrei fyrr sied iafn þykkan og þann sama hafdi Alfrigg dvergur og sagt i frá Þidreki ath Hilldi og Grimi þotti suo mikil gersimi ath bædi þau villdu hialminn kalla láta af sinu nafni og hiet hann af þui Hilldigrímur. og þann sama hialm bar siþann Þidrek langa æfui og j margar mannrauner. Nv taka þeir Þidrek og Hilldibrandur sua mikit fee sem þeirra hestar mega bera enn biuggu vandliga vmm þat er epter var. Epter þetta fara þeir heim ok af slikumm stórvirkiumm og morgumm audrumm verdur Þidrek fræg-ur wmm oll lønd.

Chapter 18

Hier hefur vpp þátt.

Fyrer nordann fiall j Suava þar er su borg er heiter Sægard þar ried fyrer hin ríka og hin fagra og hin mikiláta Brynhilldur er fegurst er kvenna j sudur londumm og sua nordur af speki og storvirkium er gior verda fyrer hennar saker og seint munu fyrnast. J einum skóg ei þadann langt stenndur eitt bý mikit er atti Brynhilldur og ried fyrer sa madur er Studas hiet. Hann er vitur og hinn mesti athgierfuis madur vmm marga luti. J þessum skogi eru morg ross og gód. ok af ollumm róssumm þeim sem þar eru er eitt stód miklu best og ekki þui likt þo leiti vmm oll lønd. Enn þessi hross eru med grám lit edur bleikum edur svortum, oll einlit. J þessu stodi eru hestar bædi stórer og vænliger skióter sem fugl fliugandi og miuker vid alls kyns tamning og yfrid vel hugadir. Studas kann allra manna best ad rida hesta og ath nema bædi turnreid og gaungara. Studas er nv gamall. enn hann a einn son sem Studas hiet sem fader hans. Hann var xij vetra gamall. a þa lund er hann skapadur ap hans andlit er breidtt og ei lángt skamt nefuit og ei digurt ennibreídur og opineygur ok svarteygur. skegg hefuer hann yfrid þykt og mikit høfud og digrann hæls og skammann. Hann er herdibreídur vnder øxl er hann suo þyckur ath næligá mvndi vera álnar. hans armar voru skammer og afburdar digrer. þykka hønd hefuer hann. er skammvaxinn og midmiór. wm herdar er hann ferstrendur foturinn digur og aller hans legger eru skammer. ok ei þui siþur er hann allra manna sterkastur. ok þat er hans skemtan ath rida hest j turniment ath koma og skylmazt og skiota af lasboga edur spiotum. Hann er grimmur og hardvdigur agiarn og metnadar madur mikill suo ath einghum vill hann þióna enn flesta hata. og j þessu landi var eingi hans jafningi wmm afl og riddaraskap og allt skaplyndi. ekki a hann marga vini, enn þeir sem eru þa sparer hann vid huorki fee nie fulltingh ok fyrer þessa skulld er hann Heimer kalladur og tint hefuer hann sinu nafni rettu. þuiat einn ormur heiter suo og er grimmare enn adrer ormar. ok vid hann eru aller ormar hrædder þeir sem nær koma hans bygd. fyrer þui fiekk Studas hans nafn ath honum er þar til iafnath. ok þui kalla Værjingiar hann Heimir. Honumm er gefinn einn hestur af hinu góda stódi grár og allra hesta bestur og mestur af ollumm hestumm og hinn gamli Studas hefuer hann vandann og heiter Rispa.

Chapter 19

Þath er nv eitt sinn ath Heimer hefer tekit sinn hest og sitt sverd Blodgæng allra vapna best. ok nu seiger hann sinum fedur ath hann vill j burt rida og ei vill hann elldazt j þeima skogi. ok kanna vil ek sidu godra manna og leita mier suo sæmdar. Nu svarar Studas hans fader ef þu villt ei vera med mier og vardveita þetta bv, hvert villtu þa fara. Heimer svarar. rida skal egh sudur vmm fiall til borgar þeirrar er Bern heiter. þaþan er mier sagt af kongssyni einumm mikit er Þidrek heiter ok reina vil egh hvor okkar fær meira lut j vapna skipti. Nu seiger Studas. saght hafa mier nokkrer menn vitrer af Þidrek og muntu ætla þier mikla dul ef þu villt iafnast vid hann vmm nokkurn lvt. Far helldur j annann stad ef þu villt reyna þigh þviat illt er ath kunna ei ath ætla sier hóf. morgum hefer kapp og dul komet j mikla skømm. Heimer svarar. annat huort skal egh fa skiott bana edur vera meire madur enn Þidrek. Nu hefui egh xvij vetur ath alldri. enn hann hefuer enn ei xij vetur alla edur hverr man sa einn madur ath mier man dul ath berriast vid. og hleypur nv reidur a sinn hest Rispa og ridur nv a brott lángar leider og vkunna vegu. og ei lietter hann fyrr enn hann kiemur til Bernar og ridur til borgarinnar til kongs gardz. Enn nær hann kemur þar stigur hann af sinumm hesti Rispa og bad einn mann hallda og giæta sins spiotz meþann hann rekur sitt eyrinde, og þat er honum veitt. Nu geingur Heimer j hallina og innar fyrer kongs hásæted og kuedur hann. siþann geingur hann fyrer Þidrek kongs son og mællte. herra Þidrek. fyrer løngu heyrda egh þitt nafn og fra þier sagt og langt hefuer egh ridit fra minu heimili ath egh feinga þigh sied, vid þigh a egh eyrindi og ef þu villt reina þigh og þitt afl þa byd egh þier til einvígiss vt fyrer Bern og mætumst þar a midium velli og bere sa i brott hvarutveggia vapn er meire madur er og fræknare verdur þa er reint er. Nu svarar Þidrek reiduligha og þikker þessi madur furdu diarfur er hann mæler þeim ordumm er einghi madur hefer fyrr heyrt og einghi þorat ath stefna Þidreki til einvigiss. enn ekki lætur hann sig dvelia ath ganga til bardagha og þo meiri vaan ath þessi mun hafa mællt mikla vþurft sialfumm sier. Nu sprettur Þidrek vpp skiott og geingur vt af hallinne og med honum Hilldibrandur og fioldi riddara.

Nu er þat ath seigia ath Þidrek lætur taka oll sin vapn og er þat sagt ath einn riddari fiekk honum brynhosur, annarr brynniu. þridie skiolld sa er mikill og hardur og raudur sem blód og a dreigit leo med gulli. hinn fiordi riddari fieck honum hans hialm Hilldigrim og hann er gyrdur sínu sverdi Naglhring. fimti riddari tok háns hest og hinn vj sodladi hann. hinn vij. fær honum sitt spiót. hinn ætti helldur hans jstig, og er þat Hilldibrandur hans fóstri.

Chapter 20

Nu ridur Þidrek ut af Bern og med honum Hilldibrandur og marger adrer riddarar ok þar er fyrer Heimer og er albuinn ath beriast og keyrer huorutveggi sinn hest med sporum og ridazt ath allhraustligha og leggur hverr sinu spioti j annars skiolld og festi hvorki spioted j skilldinumm og renna hestarner hia og skiliazt þeir ath sinne og aptur snyr huorutueggi sinumm hesti og ridast ath i odru sinne ok fer enn sem fyrr. þridia sinni ridur hvor ath odrum allra dreingiligazt og vill nu hvor audrum fyrer koma og leggur Heimir sinu spioti j skiolld Þidreks suo ath j giegnum gekk skiolld vndan hanns hond og tekur brynniuna og ecke bitur hana. enn Þidrek leggur j giegnumm skiolld Heimirs og hans brynniu tuifallda og fyrer utann hans sídu og verdur hann sár nokkut og suo hart ridast þeir ath. ath hestur Þidreks fellur naligha aa eptri fætur suo ath fætur hans na jordu og suo er hann sterkur, ath ekki losnar hann j sodlinum og i sundur brestur nv j midiu hvorttueggia þeira spiotskøpt og aa þessa lunnd skilia þeir sinn turniment. Nu stiga þeir af hestunumm og bregda sverdum og ganga saman og berriast bædi leingi og braustligha og fer huorgi aa hæl fyrer odrum. ok nú høggur Heimer til Þidreks med siuu sverdi Blodgaang i hans hialm Hilldigrim og i þessu mikla hoggi brestur sverdit j tua luti fyrer framan hiolltinn, og nu er hann væpulaus og gefur sigh j valld Þidreks kongzsonar og Þidrek tekur hann til sin og vill ei drepa hann og giorir hann sinn mann og eru þeir hiner bestu viner og nu rijdur Þidrek inn j Bern og hefur hannz nafn enn nu aukest myked vid þessa frægd.