Nu lætur Samson kongur giora eitt brief ok þar med sender hann vj. riddara vel buna. enn þat stenndur a þessu briefi ath Samson kongur sennder ord Elsung jarli hinumm rika og mikilæta ok skeggsída. þier hafed leingi frestad ath giora oss sæmd j skattgiofum edur winmælumm.Nu skulut þier sennda oss ath skattgiøf ydra dottur er minn son skal til frillu hafua hinn yngri. ok henni skulu fylgia lx tiginna meyia og vel buinna hier med lx riddara med hinumm besta bunadi. hver riddari skal hafua ij hesta og einn svein. ok enn skalltu sennda mier lx hauka góda og vel vanda og lx weidi húnnda. ok a hinumm besta hundi skal helsid af gulli og togit fetlad med þinu skeggi og þa veitstu huort nockur madur j werølldu er þier rikri. villtu ei sua giora þa bu þig vel a þrimur mánudumm og allar þínar borger og þina menn ath sem best werrie þeir ydvar og ydvart riki.
Fra Samsoni kónge.
Nu fara riddarar sína leid þar til er þeir koma til þeirrar borgar er Bern heiter til Elsungs jarls hins gamla. þeir koma þar er jarl sat vnder matbordi.Nu bera þeir framm bref og jnsigle Samsons kóngs og leggia a bord fyrer jarl.Hann tekur brefuit og less sialfur. enn er vti var þa var hans andlit rautt sem blód og mællti af miklumm mód til sinna manna.Oss hefer ord senndt hinn mikli Samson kóngur ath egh skal honum skatt sennda. ok nv vill hann oss kienna ath vier erum komner a aurvasa alldur þat er vier villdumm ei nema þa er vier vorum yngri ath þiona vid skomm ogh hafa fyrer af honum vuingan. og helldur enn þetta fari framm er til er mællt skal hver borg brotinn vera j minu riki og margur riddari gior hofudlauss. og hier a ofan skal egh fyrr deyia enn þola þessa hneísu.Ok lætur nu taka þessa riddara og þann er eyrindit bar lætur hann heingia hátt fyrer borginne. enn iiij lætur hann hálshøggva og af hinumm vj liet hann hina hægri hønd høggva og sender hann sva heim.Siþann lætur hann bua allar sinar borger og kastala vid steinveggium og diki vmm grafua og setia valslonghum vmm huert borgarhlid og býr sem best sina riddara.
Fra Elsungi jarli.
Nu er mikil fyrerætlan j hans riki hversu þeir fái halldit sinu landi fyrer Samsoni kongi. riddarinn kiemur aftur i Salerni og seigher Samsoni kongi alla sina ferd og hversu haduligh hann manskada þeir feingu af Elsungi jarli. ok sem kongur heyrer þetta lætur hann sem hann hafui ecke spurt og einngu svarar hann og ei bregdur honum vid huort er honum þotti vel edur illa.
Chapter 12
Enn er lidner voru iij. mánuder þa dregst saman her vuigur ok epter þat ridur Samson kongur vt af borginne og med honum iij. kongar og marger hertugar og alls hefver hann xv þusundrut riddara og vtal annara manna. þenna her flytur Samson kongur i lannd Elsungz jarls.Enn er hann hefuer tuo daga ridit vmm þat land kiemur j mot honum Elsungur jarl og hefer x þusundrut riddara og mikinn her annann ok vida vmm lond hefuer honum lid komit bædi nordann wmm fiall og austann vr Svava og Vngaria.Enn er þeir finnazt verdur þar hørd orrusta og mannskiæd ok af hvarutveggia lidi vard mikit mannfall.
Nu ridur Samson kongur og med honum hans syner Erminrek og hinn vnghi Petmar Nu høggur Samson kongur bædi menn og hesta og fellir hvorn yfir annann a hvarutueggiu hønd sier og framm ridur hann i midiann her sinna vvina og blodga hefer hann alla sina brynniu og sinn hest og nv tekur hann sitt sverd og synghia hiolltinn suo hatt ath naligha heyrer vmm allann herinn og kallar Samson kongur.Pott einsamann væra eg ridinn j þenna her þa munda egh drepa ef þess kynne þorf med annare minne hendi hvert manns barn Elsungs manna. ok hans rodd var suo ogurligh ath nv hrædast miog suo aller.Enn er Elsungur jarl sier hversu mikinn skada er Samson kongur geyrer hans monnum og ei ma sva hlýda þa kallar hann hatt.Sæki hart framm warir menn vær munumm sigur fa enn þeir bana. þviat enda ganga varar fylkinghar betur.Ok þessi hinn digurhalsadi ormur er leingi hefuir framm sott j warn her skal steypast skiott nidur a jordina daudur ella skal egh deyia og man þa stadna þessi orrosta.Nu lystur Elsungur sinn hest sporumm og ridur einnsamann j moti Samson kongi alldreingiligha og hoggur til hans a hans skiolld ofann verþann og klyfur ofan til mvndrida | ok annad slagh a hans auxl sua ath j sunndur tekur brynniuna og veiter jarl honum mikit sar. ok iafnskiott hoggur Samson kongur til jarls a hans hals sua ath af tok høfudit. ok nv tekur Samson kongur høfud jarls og helldur vpp ok spyr ef Elsungs menn kienna hofudit og bidur þa hætta ad beriast ef þetta hofud hefur att Elzungur jall. ok nv stodvar orrostona er jarl var fallinn ok nv gefa sigh vpp aller Elsungs menn j valld Samsons kongs og hans sona.
Nu ridur Samson kongur med allann sinn her til Bernar, ok eingi er sva diarfur ath þore ath hallda fyrer honum borg edur kastala j Elsungs lannde.Enn er Samson kongur kiemur til Bernar þa er vpp lokit ollumm borgarhlidumm og j moti honum ganga borgarmenn med allskins leikumm og syna honum allar sinar feehirdslur þær er átt hafde Elsungur jall og gefa allt i hans valld.
Chapter 13
Samson kongur lætur nv geyra rika veitslu j Bern, ogh ath þessari veitslu giptir hann Odiliam dottur Elsungs jarls Þethmar syni sinum og gefur honum kóngs nafn ok þar med Bern og allt þat riki er att hafdi Elsungur jarl og borg þa er heitir Fritila er Væringiar kalla Fridsælu gaf hann syni sinum er Aki hiet og þar med hertugha nafn.Moderni hans var ecke mikit. þessi Aki var kalladur Aurlungha transti.Hann var mikill hofþingi og ríkur.Samson kongur og Erminrek kongur ílytia nu her sinn svdur til Romaborgar ogh j þeirre ferd feck Samson kongur hinn riki bana.Enn Erminrek kongur hans son tok vid riki þui ollu er att hafdi fader hans. ok fer nv til Romaborgar og a margar orrostor og eignadist hinn besta lvt Romaborgar og margar adrar storborger vann hann vt a Puli, og hann eignadizt mestann lut rikiss vtann fra Griklandz hafui og nordur vmm fiall og mikinn luta Gricklanndz eyia og geyrist hann allra konga mestur og rikastur.Hann er vinsæll og fridsamur hinn efra lvt æfe sinnar.
Chapter 14
Fra Þettmari kóngi.
Þettmar kongur rædur nv fyrer Bern.Hann er mikill madur fyrer sier og agiætur vitur og storrádur og bardaga madur mikill gladur og litilátur milldur og stórlatur og vinsæl vid sína menn.Hanns kona Odilia er vitur og vinsæl og allra kvenna ath sier gior best vmm alla luti. þau attu einn son er Þidrekur het.Enn er hann vox vpp þa var hann sva mikill madur vextti ath varla fieckst hans maki þess er hann var ei risi.Hann var langleitur ok riettleitur lioslitadur og eygdur manna best og nockut skolbrunn.Hár hans var litid og fagurt og lidadizt allt j locka. a honum var ekke skegg suo gamall madur sem hann vard.Hanns herdar voru suo miklar ath tveggia alna var yfer ath mæla.Hanns armar voru suo digrir sem mikill stokkur enn harder sem steinn fagra hønd hefer hann wmm midian er hann mior og vel vaxinn enn hans miadmer eru sva digrer og lær ath hvorium manne þikkir furda mikil hvi þannueg maa madur skapadur verda.Hans fætur voru fagrer wel waxnir.Enn kaalfinn og fotleggurinn er sua digur ath vel mátti eiga einn risi, hans afl er sua mikit, ath eingi madur weit og naligha sialfur hann fær þat varla reint.Hann er gladur og litilaatur milldur og storgiofull sua ath ekki sparir hann vid sína wini gull nie silfur nie gersimar og naligha vid hvern er þiggia vill. þad er allra manna maal ath aa skaplyndi og aa alla athgerfui þeirra er sied haufdu Samson ath hann munde vera hans make.Enn þeir er ei sied høfdu Samson kong þeir hyggia ath ei hafui verit skapadur þuilijkur madur sem Þidrekur wmm alla hlute.Pettmar kongur dubbadi Þidrek til riddara þa er hann var xij vetra og setur hann hofþinghia innann hirdar yfer ollumm monnum og riddorum og virdist hann þui betur sem hann er rikri.
Chapter 15
Hier hefur vpp einn þaatt.
Einn hertughi ried fyrer borg þeirre er heiter Fenidi.Hann var mikill hofþinghi og athgiorfuis madur.Hans synir voru þeir Boltram og Reiginballd er siþann voru hertughar j Fenidi og Svava.Reginballdur hertughi atti einn son er hiet Hilldibrandur.Enn er hann var xij vetra tekur hann vapn sín og geingur fyrer hasæti fodurs sins og dubbar hertughinn hann til riddara og geyrir hofþinghia yfer morgum riddarum.Boltram hertughi atti einn son er Reginballdur hiet.Hans son var Sintram er enn man nefndur verda siþar.Hilldibrandur er væenn madur og lioslitadur breidleitur og eygdur forkunnar vel riettnefiadur.Hæærr hans og skegg er gult sem silke og hrøkkur sem lokarspann og allra manna var hann tiguligastur.Hann er mikill vegsti witur og ræædamadur mikill og vmm allann dreingskap er hann forgangs madur flestra fastvingur sua ath alldrei vill hann læta win sinn.Hann var milldur af fee og litilátur, j ollu þvi landi fieck ei hans maka ath hug og hreysti og ollu athgiørfui þa er hafua þarf til riddaraskapar.
Frá meistara Hilldibrandi.
Enn er Hilldibrandur er þritugur ath alldri seiger hann fødur sinum ath hann vill kanna fleiri tiginna manna sidu ok ei mææ egh frægur vera ef egh skal ekki geyra annat enn vera heima j Fenidi edur rida j Suaua.Hertughinn spyr hvert hann vill fara.Hilldibrandur svarar ath hann hefer spurt af einum rikum kóngi og er þangat long leid. enn þad er Þettmar kongur af Bern. þangath vil eg fara.Ogh nv byr hann sigh ok med honum xv riddarar og eru aller vasker og velbuner.Nu ridur hann sina leid þar til er hann kiemur j Bern ææ fund Þettmars kongs.Hann tekur vel vid honum og bydur honum med sier ath vera med hinum mesta blóma ok Hilldibrandur þecktist þetta vel. kongur setur hann hid næsta sier, ok er hann med Þidreki kongi leingi sem gietid mun verda siþar j þessari søghu.Þidrek son Þettmarrs kongs var þa finm vetra gamall.Hilldibrandur setur nidur Þidrek hia sier og fostrar hann þar til ath hann er xij vetra gamall og hann var hofþinghi gior jnnann hirdar. enn sva mikit ann hvar þeirra odrumm ath einguir karlmenn hafa meira vnnazt eptir þni sem David kongur og Jonathas.