Þorkell hét maður er bjó á Mýri.Hann var góður bóndi.Brandur hét sonur hans.Hann var mikill maður og sterkur og 5 var kallaður Vöðu-Brandur.Hann var maður ódæll og illur viðureignar og heldur óvæginn svo að trautt mátti faðir hans halda vinnuhjónum fyrir honum.
Eitt sumar kom skip af hafi norður við Tjörnes.Það áttu þrænskir menn.Hét annar Þórður en annar Sigurður.Það var þá siður að hásetar vistuðust fyrr en stýrimenn.
Einn dag reið Vöðu-Brandur til skips og fann stýrimenn.Þeir spurðu hvað manna hann var en hann kvaðst vera búanda son.Þeir spurðu ef faðir hans mundi vilja taka menn til vistar.
En hann kvað þar eigi útlendra manna vist, " er þar fámennt og dauflegt, " segir hann, " en þó er enn annar meiri annmarki á. "
Þeir spyrja hver sá væri.
Hann svarar: " Það er sá að engi má við mig skapi koma. "
Þeir kváðust á það hætta mundu.
Brandur svarar: " Þá mun eg þetta mál tala við föður minn, " ríður nú heim og segir föður sínum að hann hefir tekið við stýrimönnum.
Þorkell kvað það vera hætturáð " en vel þætti mér, " segir hann, " ef þér yrði sæmd að. "
Hann kvað föður sinn einan ráða skyldu " en betur þykir mér, " segir hann, " að við höfum eigi svikið þá. "
Þorkell bað hann sjá fyrir " því að þetta kemur mest til þín. "
Síðan fór Vöðu-Brandur til móts við Austmennina og sagði að þeim var kostur vistarinnar en þeir kváðust það þiggja mundu og fóru heim með honum.Það töluðu margir menn að þeim hefði þetta kynlega missést.Síðan var heim færður varningur þeirra stýrimanna og reið Brandur með hann norðan til Fnjóskadals og seldi hann þar.Það töluðu þar margir menn að Brandur mundi enn hafa vana þann að hann mundi illa við þá lúka sem alla aðra.En stýrimenn gáfu að slíku engan gaum hvað sem hver talaði.Fór Brandur allt til Eyjafjarðar með varninginn áður en hann gat selt allan en eigi gat hann um fyrir stýrimönnum hvar hann hafði selt varning þeirra þá er hann kom heim.
En um vorið fór hann að heimta saman fé Austmanna og sýndist engum ráð að halda fyrir honum réttri skuld og heimti hann hverja alin þá er honum bar að heimta.En er hann kom heim sýndi hann stýrimönnum og virtist þeim vel.Báðu þeir hann sjálfan kjósa sér laun fyrir en hann kvaðst vildu utan fara með þeim.
Þeir sögðu það til reiðu skyldu og báðu hann vera skapvaran " eða hvað er til fararefna? " sögðu þeir.
Hann kvað það mjög undir föður sínum vera.Þeir tóku nú tal við Þorkel og sögðu honum þetta.
En hann kvaðst hyggja að þeir mundu vera góðir drengir " og mun eg láta til við hann fimmtán hundruð.Og er mér þó grunur á að ykkur kosti meira, " sagði hann, " ef þið viljið honum nokkura ásjá veita. "
En þeir kváðust á það hætta mundu.
Fóru þeir nú utan um sumarið og líkaði þeim vel við Brand því að hann var bæði knár og liðvaskur.Þeir voru úti lengi og komu að norður við Þrándheim.Buðu þeir bræður Brandi heim með sér og það þiggur hann.Þar áttu menn gleði saman og var þar fjölmenni mikið.Þeir bræður buðu Brandi með sér að vera en sögðu vant að vera í stórum samdrykkjum.
Hann kvaðst eigi á aðra leita mundu að fyrra bragði " en eigi veit eg, " segir hann, " hversu mér bregður við ef aðrir leita á mig. "
Þeir komu til þess manns er Hárekur hét.Hann var ættstór og mjög áleitinn og hafði sveit manna um sig við sitt skaplyndi.En er hann sá Íslendinginn tók hann til að spotta hann og hæða á marga vegu.Fór nú svo fram um hríð að þeir ortust á vísur og varð Brandur hlutdrjúgari svo að Hárekur fékk úr verra.Hárekur kvað Brand eigi hafa beðið sig byggðarleyfis en fylkismenn sögðu að þeir bræður ættu heimila sveitarvist þeim sem þeir vildu.Hárekur var hinn mesti vígamaður og bætti engan mann fé.
Einn dag gekk Hárekur fyrir Brand með horn mikið og bað hann drekka til móts við sig.
En Brandur kvaðst eigi drekka mundu, " hefi eg vit eigi of mikið þótt eg drekki það eigi frá mér sem eg hefi áður.Munt þú og þurfa vit þitt allt að því er mér líst á þig. "
Hárekur drekkur nú af horninu til hálfs og bauð Brandi að drekka hálft er eftir var en hann vildi eigi við taka.Hárekur kvað hann skyldu verða að þjóna honum og laust horninu í höfuð honum svo að drykkurinn slóst niður á Brand.Síðan gekk Hárekur til rúms síns og slær nú til spotts við Brand en Brandur gerði sig eigi óðan og sló þessu í gaman.Hárekur kvað honum svo við þetta verða sem hann hefði oft barður verið.
En um morguninn er menn voru komnir í sæti sín gekk Brandur fyrir Hárek, keyrði öxi í höfuð honum og vó hann.Nú spruttu upp hvorratveggju þeirra menn og varð þar þröng mikil.Þeir bræður gátu Brandi í brott skotið og buðu boð fyrir hann frændum Háreks.En með því að hann var óvinsæll þá tóku þeir fébætur.Gekk þá upp fé það allt er Brandur hafði haft af Íslandi og meira annað.
Síðan spurðu þeir bræður hvað Brandur vildi ráða sinna en hann kvaðst vilja fara til Íslands þótt nú væru eigi sýn fararefni.
Sigurður kvaðst eigi við fleirum mönnum hafa tekið af Íslandi en svo að hann skyldi hafa peninga slíka sem hann hafði til hans haft " og eru hér nú fimmtán hundruð þín, " segir hann, " og er þeim varið í norrænan eyri. "
Síðan fylgdu þeir bræður honum til skips og skildu eigi við hann fyrr en þeir létu í haf.Þakkaði Brandur þeim vel sína liðveislu alla og skildust vinir.Skipi því byrjaði lítt og tóku þeir Reyðarfjörð að áliðnu sumri.Snemma tók að hausta og gerði færðir þungar sökum snjóva.
Chapter 12
Þorkell hét maður Geitisson.Hann bjó í Krossavík í Vopnafirði.Þá var á vist með honum sá maður er Einar hét.Hann var reykdælskur.En er hann frétti að Vöðu-Brandur var út kominn þá bjó hann sig.Þorkell spurði hvert hann ætlaði.
Hann kvaðst á braut ætla " því að eg hefi spurt að Vöðu-Brandur er út kominn en eg veit risnu þína að þú munt taka við honum.En til hans má engi maður sæma. "
Þorkell svarar: " Snemmt er þér að kvíða við honum.Og ef hann kemur hér niður skal eg sjá ráð fyrir þér ef þér er eigi hér við vært.En ef það verður að Brandur er hér og leitar hann eigi á þig þá er þér marglæti í að bregða vist þinni. "
Lét hann nú setjast.
Fám nóttum síðar kom Vöðu-Brandur í Krossavík og var þar vel við honum tekið.En er hann hafði þar verið þrjár nætur þá talaði hann við Þorkel bónda og sagði að hann vildi að hann tæki við honum um veturinn.
Þorkell svarar: " Gera mun eg þér kost á því þótt þú sért ódæll og óeirinn.Nú vil eg taka við lögheimili þínu því að mér þykir það óvandast en þú skalt fá varning þinn í mitt vald hvað sem að borði kann að bresta. "
" Þenna kost vil eg, " kvað Brandur, " því að mér er leitt að rekast í ófærðum en illt nú til heyja. "
Hinn fyrsta hálfan mánuð er Brandur var í Krossavík var hann svo fylgisamur Þorkatli að hann gekk út og inn með honum hvert sem hann fór.En annan hálfan mánuð brá nokkuð hætti hans.Þá var hann eftir í stofu á kveldum er Þorkell gekk að sofa og hafði frammi margs konar ertingar.Og það hafa menn sagt að hann hafi fyrstur fundið Syrpuþingslög.Komu menn víða af bæjum og gerðist þar af þys mikill.Þorkell sat að drykkju og var eigi nema við annan mann.Nú er getið um fyrir Þorkatli að konum þykja ríkt bornir kviðirnir er þær komu eigi fram vörn nýtri og eigi réðu þær sjálfar ferðum sínum.
Þorkell heimti nú Brand á mál við sig og mælti: " Eigi hefi eg hlutsamur verið um hagi þína og háttu hér til.En það kemur fyrir mig að konur ráði varla ferðum sínum fyrir þér og sveitungum þínum en þér hæfir slíkt varla.Er hér því líkast sem nýr höfðingi sé kominn í sveit og gangi menn af hendi þeim sem áður er fyrir.Eg geng fram við annan mann en þú situr eftir við alla sveitina.Og nú vil eg að því gera láta. "
Brandur kvað betur mundu af ráðast.
Og um kveldið fór Brandur til rekkju.En þingmenn komu að vana sínum og máttu þá eigi heyja þing er formaðurinn var engi.Var þá farið eftir honum og fór hann eigi að heldur.Þá komu þingmenn annan aftan og fór enn sem fyrr.Tók þá af komur manna en Brandi kom aldrei orð frá munni á hálfum mánuði.
Þá mælti Þorkell við Brand: " Örskiptamaður ertu mikill.Nú tak þú aftur gleði þína hæfilega. "
Hann kvaðst eigi kunna og eigi vita hversu hann skyldi með fara er engan veg líkaði " og er engum manni hjá þér vært og skal eg í brott fara. "
Þorkell mælti: " Þú ert minn heimamaður og það þykir mér þú gera mér til svívirðingar ef þú hleypur í brott úr vist þinni. "
Brandur reið nú á braut eigi að síður og vestur til föður síns.Þar tókust brátt upp leikar.Þorbjörn var þar knástur maður frá Reykjum og lékust þeir við og Brandur.Báðu menn þá að Þorbjörn skyldi leika af öllu afli og sýna það að hann var sterkur maður.Hann kvað það vel mundu mega.Og einn dag er leikur var keyrði Þorbjörn Brand niður fall mikið, leikur nú eftir megni og hafði Brandur eigi við.Líkaði honum nú illa.Og að skilnaði þeirra veitti Brandur honum mikinn áverka.Þar var þröng mikil og var þar kominn Ófeigur úr Skörðum.Brandur fer nú heim til föður síns og segir honum hvar komið var.
Þorkell svarar: " Þú hefir stýrt oss í mikið vandræði og var það mjög ófyrirsynju er þú fórst í brott frá Þorkatli.Nú er það mitt ráð að þú farir aftur á hans fund. "
Brandur kvaðst þess ófús vera en þó fór hann austur og sagði Þorkatli þessi tíðindi.
En hann kvað betra að hann hefði kyrr verið: " Mun eg þó við þér taka því að eg man eigi að eg hafi heimamann minn fyrir róða látið. "
Chapter 13
Síðan fór Þorkell Geitisson á fund Guðmundar hins ríka og bauð fé fyrir manninn, " vil eg að þú gerir sjálfur um. "
Guðmundur kvaðst eigi vilja taka fé fyrir slíkan óeirðarmann er hlaupa vildi í höfuð saklausum mönnum " og er landhreinsan að slíkir menn séu af ráðnir að lögum. "
Fékk Þorkell ekki af en Guðmundur fór norður í Reykjahverfi og tók mál af Þorbirni og bjó það til vorþings.
Nokkuru síðar fór Þorkell Geitisson austur í Álftafjörð á fund Þorsteins Síðu-Hallssonar vinar síns og tók hann vel við honum.
Þorkell mælti: " Svo hefir borið til í vetur að Brandur, mikill ónytjungur, hefir unnið á einum bónda fyrir norðan en hann er nú heimamaður minn.En Guðmundur hinn ríki hefir búið málið til Vöðlaþings.Kann það vera að hann hafi eigi það íhugað að hann er eigi nú þar í fjórðungi og hefi eg handsalað honum löggrið.Og kemur mér það í hug að oss muni veita mál til laga.Nú vildi eg þitt liðsinni til þiggja að sækja til þings og verja málið með kappi fyrir Guðmundi ef hann skal þó eigi fébótum fyrir koma og reyna svo hvort eg sé eigi annarrar handar maður hans sem hann svaraði Bjarna Brodd-Helgasyni frænda mínum um sumarið á alþingi. "
Þorsteinn kvaðst sjá að vörn var í málinu " en þó mun þá þykja með kappi að gengið og fara mun eg með þér. "
Um sumarið búast þeir heiman með sex tigu manna hvorir og ríða til Jökulsár.En þá voru góð vöð víða.
Þá mælti Þorkell: " Nú munum vér skipta liði voru.Skal Þorsteinn og vér fimm saman fara almannaveg vestur til þings en flokkurinn allur annar skal ríða fyrir ofan Mývatn til Króksdals og Bleiksmýrardals og svo fyrir neðan heiði. "
Var þar þá víða skógi vaxið.Og ríða þeir ofan eftir Fnjóskadal en þeir Þorkell fóru á Akureyri því að þeir höfðu tjöld samlit við skóga.Þeir finnast nú þar sem á kveðið var og varð engi maður var við ferð þeirra.
Þeir Þorkell og Þorsteinn ríða á þing drottinsdaginn og þeir fimm saman.Þorkell bað menn sína skynja ef hann þyrfti liðs við.Kvaðst hann þá mundu ganga á hól þann er var í milli þings og þeirra " og mun eg hafa í hendi handöxi mína hina reknu og veifa henni yfir höfuð mér. "
Síðan ríða þeir á þingið til búðar Ófeigs Járngerðarsonar fimm saman.Hann bauð þeim þar búðarvist.
Maður kom inn í búð Guðmundar hins ríka.
" Furðu fámennir ríða þeir Þorkell Geitisson á þingið, " segir hann.
" Hversu þá? " segir Guðmundur.
" Þeir voru með fimmta mann, " segir hann.
Guðmundur kvað þá mundu ríða mega með meira flokki í völlinn ef þeir ætluðu að eyða málum fyrir honum " en þó kemur mér nú það í hug að vanhugað mun nokkuð í máli voru.Þeir Þorkell munu kalla hann sinn heimamann en þó er ólíklegt að Þorkell eyði málum fyrir oss við fimmta mann.En vera má að hann búi um brögð nokkur við oss og hafi þeir fleiri saman verið. "
Sendir hann þá menn þegar að spyrja að gistingarstöðum þeirra.Og kann engi annað að segja þar sem þeir hafa gist en það að þeir hafi eigi fleiri saman verið en fimm.
Þá mælti Guðmundur: " Vera kann að þá megi hlýða ef þeir hafa eigi fleiri austan riðið og munum vér þá eigi senda eftir fleira liði að sinni.Og ganga mál þessi til svo sem auðnar. "
Chapter 14
Guðmundur hinn ríki sækir nú málið í Norðlendingadóm og setur dóminn og býður til varnar.
Þá mælti Þorkell Geitisson: " Það vildi eg Guðmundur að þú tækir sættir og sjálfdæmi sektalaust. "
Guðmundur svarar: " Það mundi eg þiggja ef þú ættir eftir duganda mann að bjóða.En nú nenni eg eigi um vanmennu þá er eg hefi svo starfa fyrir haft. "
Þá mælti Þorkell og nefndi sér votta og setti lýritti og fyrirbauð þeim að dæma.En Guðmundur kvað hann nú með kappi að ganga að verja og segir hann skulu þar engum sínum málum fram koma.
Þá mælti Þorkell: " Enn munum vér þetta handsala fyrir manninn ef þú vilt sjálfdæmi taka. "
Guðmundur kvaðst eigi sækja manninn í þeirra sveit ef þeir vildu eyða þar málum fyrir honum " og skal að vísu maðurinn sekur verða. "
Þá gekk Þorkell upp á hólinn og brá upp öxinni.Dynja þá þegar menn hans fram á þingið og hleypa upp dóminum.Kom þetta á alla óvara.Nefndi Guðmundur sér votta og stefndi Þorkatli um þingsafglöpun en Þorkell stefndi Guðmundi um rangan málatilbúnað og stefndu báðir til alþingis um sumarið.
Fjölmenntu þeir þá mjög hvorirtveggju.Var þar Bjarni Brodd-Helgason og hafði hann mikinn flokk og vissu menn eigi hvar hann mundi að snúast um liðveisluna.Þeir Þorkell og Þorsteinn voru fjölmennir en þó var Guðmundur miklu fjölmennari.Þorkell átti búð uppi við Fangabrekku.Var nú leitað um sættir milli þeirra og var fast fyrir.
Einn morgun snemma gekk Þorsteinn Síðu-Hallsson til búðar Ófeigs Járngerðarsonar og talar við hann.
Þorsteinn spyr: " Hversu segir þér hugur um sættir manna? "
Ófeigur kvað sér hug þungt um segja og mjög þunglega á horfast.
Þorsteinn mælti: " Það vil eg þér kunnigt gera þar sem þér eruð vinir hvorratveggju að hér munu áður vandræði af gerast ef eigi er sæst á málið.Þeir ætla að bjóða Guðmundi einvígi og vill hann heldur hafa bana en svívirðing of mikla... og hætta á við Einar bróður hans.Nú væri það ráðlegra að menn leiti um sættir og eigi þar í Einar hlut þann sem vér eigum allir.Hefir Þorkell það mjög við orð að biðja Jórunnar dóttur Einars að Þverá.Nú vil eg að við hittum Einar. "
Ófeigur svarar: " Vel þykir mér þeirra mála leitanda við Einar en hin málaleitan sýnist mér óviturleg. "
Síðan hitta þeir Einar og ganga nú á tal allir saman.
Ófeigur mælti: " Svo er sem þú veist Einar bóndi að hér horfir til stórra vandræða með mönnum og eiga þeir menn í hlut er vitmenni eru báðir og þó kappsfullir.En vér erum beggja vinir og skyldir til að ganga vel í milli.Því vill Þorsteinn það mál uppi hafa við þig að biðja til handa Þorkatli Geitissyni Jórunnar dóttur þinnar. "
Einar kvað þessa vel leitað " en þó mun Guðmundur hér mestu um ráða þá er vér finnum hann. "
Þeir kváðust ætla að hann sjálfur mundi réttur lögráðandi vera fyrir dóttur sinni þó að eigi væri Guðmundur að fundinn, " muntu á það líta að Guðmundur heldur þér lengstum lítt til metnaðar eða virðingar. "
Einar mælti: " Er Þorkell eigi félítill en dóttir mín hefir mikið fé? "
Ófeigur svarar: " Hver er stórlyndari en Þorkell því að hann geldur fé fyrir menn á þingum eða hvers þeirra bú stendur með meira blóma en hans?Hvað er þá undir um peninginn er hvorki verður honum gjald að né öðrum?Og situr hann yfir virðingum allra Austfirðinga. "
" Allvel er nú flutt Ófeigur enda hefir Guðmundur góðs spáð Jórunni dóttur minni og ganga jafnan eftir spár hans.Má nú og vel tala um þessi mál, ef sýnist, vilji Þorkell hingað ganga. "
En Þorsteinn kvað það eigi mundu að bila.
Chapter 15
Nú gekk Þorsteinn Síðu-Hallsson þegar til búðar Þorkels en hann heilsar honum vel og spurði hvað hann árnar.
Þorsteinn svarar: " Eigi veit eg nú að hverju verða vill en konu hefi eg beðið í morgun til handa þér. "
Þorkell mælti: " Mikið er um liðveislu þína við mig er þú gerir það ekki síður er eg býð þér um eigi.Hver er sjá kona? "
Þorsteinn svarar: " Sjá mær heitir Jórunn og er dóttir Einars frá Þverá. "
Þorkell mælti: " Þá mey vildi eg og helst eiga á Íslandi. "
Þorsteinn mælti: " Þá er nú ráð að ganga til festarmálanna. "
Síðan finnast þeir Einar og Þorkell og tala um málið.Urðu þeir á allt vel sáttir og á kveðin brullaupsstefna.Síðan fóru festar fram og skyldi brullaupið vera að Þverá hálfum mánuði eftir þing.
Síðan gekk Þorsteinn þar nærri sem Guðmundur hinn ríki var og þótti honum vel að tal þeirra bæri saman og svo varð.
Guðmundur mælti: " Göngult verður þér Þorsteinn um þingið og munuð þér mikið afreka. "
Þorsteinn svarar: " Eigi síður mun þér það þykja ef þú veist gjörla. "
Guðmundur spyr: " Hvað er nú nýrra tíðinda Þorsteinn? "
Hann svarar: " Smá eru tíðindi sem eg hefi að segja en þó það helst að Þorkell Geitisson festi sér konu. "
Guðmundur svarar: " Sú kona er vel gefin er honum er því að hann er hinn mesti hreystimaður þótt nú sé með okkur fátt.Eða hver er sú kona? "
Þorsteinn svarar: " Jórunn bróðurdóttir þín. "
Guðmundur mælti: " Eigi var Einari það í hug áðan er við skildum. "
" Nú rétt gekk eg frá festarmálunum og var eg votturinn og Ófeigur Járngerðarson. "
Guðmundur mælti: " Satt muntu segja og þar mun hugur minn mest hafa fyrir borist en þessu mun mest hafa ráðið Ófeigur Járngerðarson. "
Síðan var um sættir leitað og gekk nú mest að Einar og Ófeigur Járngerðarson.
Þá mælti Guðmundur: " Nú er það fram komið Ófeigur er eg spáði þér um vorið að mín virðing mundi hallast af þínu tilstilli. "
Ófeigur svarar: " Eigi hefi eg hallað virðingu þinni að heldur þó að eg hafi fengið þér mága betri og fleiri en áður. "
Þorkell mælti: " Enn vil eg bjóða þér Guðmundur að þau hin sömu boð haldist er þú gerir um sjálfur fyrir áverkann en eg geri fyrir málatilbúnaðinn er eg hefi haft við þig. "
Guðmundur sá nú að sér gerði eigi annað og tók þetta boð og gerði svo að báðum hugnaði vel.En þó eldi hér lengi af með þeim bræðrum.En Þorkell sat yfir sæmdinni allri.
Og einn dag á þinginu fundust þeir Guðmundur hinn ríki og Bjarni Brodd-Helgason.
Þá mælti Bjarni: " Svo sýnist mér Guðmundur sem þú hafir þurft báðar hendur við Þorkel frænda minn og hafi þó ekki af veitt um.Og man eg enn það Guðmundur er eg bað þig að þú skyldir sætta okkur Þorkel og svaraði engi ódrengilegar en þú og sagðir hann eigi vera mundu meira en annarrar handar mann gilds manns og kvaðst hann hafa hálfþynnu eina í hendi en mig höggspjót gilt á hávu skafti.En eg em nú minni höfðingi en þú og sýnist mér sem hann muni eigi þar lengi gengið hafa skaftamuninn. "
Síðan fóru menn af þinginu.Og var brullaup að Þverá og gaf Þorkell upp Guðmundi mál það er hann hafði rangt til búið er hann sótti í Norðlendingafjórðung þá er hann átti í Austfirðingadóm að sækja.Síðan fór Þorkell heim með konu sína og þótti hann mjög vaxið hafa af þessi ferð.En Jórunn var hinn mesti kvenskörungur sem ætt hennar var til.Hún kom og því til leiðar sem engi hafði áður komið að þeir sættust frændurnir, Þorkell Geitisson og Bjarni Brodd-Helgason, og héldu þá sætt vel og drengilega síðan.Þorkell bjó í Krossavík til elli og þótti ávallt hinn mesti garpur þar sem hann kemur við sögur.
Vöðu-Brandur fór austan og bjó á föðurleifð sinni og samdist mikið og þótti góður bóndi og þóttist aldrei fulllaunað geta Þorkatli Geitissyni sína liðveislu og góðvilja.
Og lýkur þar þessum þætti af Vöðu-Brandi Þorkelssyni.