Nærri þessum tíma kom út Friðrekur biskup og Þorvaldur Koðránsson er kallaður var hinn víðförli. Nǽrri þessum tíma kom út Friðrekr biskup ok Þorvaldr Koðránsson er kallaðr var inn víðförli. Þessu næst kom út annað skip og voru þar á berserkir tveir og hét Haukur hvortveggi. Þessu nǽst kom út annat skip ok váru þar á berserkir tveir ok hét Haukr hvárrtveggi. Þeir urðu óvinsælir af mönnum því að þeir buðu mönnum nauðung til kvenna eða fjár ella buðu þeir hólmgöngu. Þeir urðu óvinsǽlir af mǫnnum því at þeir buðu mǫnnum nauðung til kvenna eða fjár ella buðu þeir hólmgöngu. Þeir grenjuðu sem hundar og bitu í skjaldarrendur og óðu eld brennanda berum fótum. Þeir grenjuðu sem hundar ok bitu í skjaldarrendur ok óðu eld brennanda berum fótum. Þeir biskup og Þorvaldur fóru með nýjan sið að bjóða mönnum aðra trú en sú er hér var áður. Þeir biskup ok Þorvaldr fóru með nýjan sið at bjóða mǫnnum aðra trú en sú er hér var áðr. Þeir voru að Giljá hinn fyrsta vetur. Þeir váru at Giljá inn fyrsta vetr. Landsmenn styggðust við nýgervingum þessum er þeir biskup fóru með. Landsmenn styggðust við nýgervingum þessum er þeir biskup fóru með. Koðrán tók trú og skírn í fyrsta lagi og kona hans. Koðrán tók trú ok skírn í fyrsta lagi ok kona hans. Ólafur að Haukagili var svo gamall að hann lá í rekkju og drakk horn. Óláfr at Haukagili var svá gamall at hann lá í rekkju ok drakk horn.
Um haustið að veturnóttum bauð Ólafur til sín vinum sínum, einkum Þorkeli mági sínum. Um haustit at veturnóttum bauð Óláfr til sín vinum sínum, einkum Þorkatli mági sínum. Þeir biskup og Þorvaldur voru þar. Þeir biskup ok Þorvaldr váru þar. Vel að eins tók Þorkell þeim og lét þá vera eina saman í húsi því að þeir höfðu annan sið. Vel at eins tók Þorkell þeim ok lét þá vera eina saman í húsi því at þeir hǫfðu annan sið. Hinn fyrsta aftan veislunnar var sén ferð berserkjanna og kvíddu menn mjög við þeim. Inn fyrsta aftan veislunnar var sén ferð berserkjanna ok kvíddu menn mjǫk við þeim. Þorkell spurði biskup ef hann vildi ráð til leggja að berserkir þessir fengju bana. Þorkell spurði biskup ef hann vildi ráð til leggja at berserkir þessir fengi bana.
Biskup bað þá taka við trú og láta skírast en hann kvaðst mundu af ráða illmenni þessi " með yðrum atgangi. " Biskup bað þá taka við trú ok láta skírast en hann kvazk mundu af ráða illmenni þessi " með yðrum atgangi. "
Þorkell mælti: " Allt er þá nær ef þér sýnið mönnum jarteinir. " Þorkell mǽlti: " Allt er þá nǽr ef þér sýnið mǫnnum jarteinir. "
Biskup mælti: " Látið gera elda þrjá á gólfi í skálanum. " Biskup mǽlti: " Látið gera elda þrjá á gólfi í skálanum. "
Og svo var gert. Ok svá var gert.
Síðan vígði biskup eldana og mælti: " Nú skal skipa bekkina af mönnum þeim er bestir eru áræðis með stóra lurka því að þá bíta eigi járn og skal svo berja þá til bana. " Síðan vígði biskup eldana ok mǽlti: " Nú skal skipa bekkina af mǫnnum þeim er bestir eru árǽðis með stóra lurka því at þá bíta eigi járn ok skal svá berja þá til bana. "
Síðan gengu þeir nafnar inn er þeir komu og óðu eldinn fyrsta og svo annan og brunnu þá mjög og urðu nú furðulega hræddir af eldshitanum og vildu þegar að bekkjunum. Síðan gengu þeir nafnar inn er þeir kómu ok óðu eldinn fyrsta ok svá annan ok brunnu þá mjǫk ok urðu nú furðuliga hrǽddir af eldshitanum ok vildu þegar at bekkjunum. Síðan voru þeir lamdir til bana og voru færðir upp með gili því er síðan heitir Haukagil. Síðan váru þeir lamdir til bana ok váru fǿrðir upp með gili því er síðan heitir Haukagil.
Biskup þóttist nú kominn til kaups við Þorkel að hann tæki við trú og léti skírast. Biskup þóttist nú kominn til kaups við Þorkel at hann tǿki við trú ok léti skírast.
Þorkell kvaðst eigi vilja aðra trú hafa " en þeir Þorsteinn Ingimundarson höfðu og Þórir fóstri minn. Þorkell kvazk eigi vilja aðra trú hafa " en þeir Þorsteinn Ingimundarson hǫfðu ok Þórir fóstri minn. Þeir trúðu á þann er sólina hefir skapað og öllum hlutum ræður. " Þeir trúðu á þann er sólina hefir skapat ok ǫllum hlutum rǽðr. "
Biskup svarar: " Þá sömu trú boða eg með þeirri grein að trúa á einn guð, föður, son og heilagan anda, og láta skírast í vatni í hans nafni. " Biskup svarar: " Þá sǫmu trú boða ek með þeirri grein at trúa á einn guð, fǫður, son ok helgan anda, ok láta skírast í vatni í hans nafni. "
Það þótti Þorkeli mest af bregða er í vatni skyldi þvost og kvaðst eigi nenna enn um sinn að hafa þessa breytni en kvaðst þó hyggja að sjá mundi góð " og þessi skipan mun hér og við gangast. Þat þótti Þorkatli mest af bregða er í vatni skyldi þvost ok kvazk eigi nenna enn um sinn at hafa þessa breytni en kvazk þó hyggja at þessi myndi góð " ok þessi skipan mun hér ok við gangast. Ólafur bóndi mágur minn er gamall. Óláfr bóndi mágr minn er gamall. Hann skal taka við þessi trú og allir aðrir þeir er vilja en eg mun enn bíða um tíma. " Hann skal taka við þessi trú ok allir aðrir þeir er vilja en ek mun enn bíða um tíma. "
Síðan var Ólafur skírður og andaðist í hvítavoðum og enn voru skírðir fleiri menn að þeirri veislu. Síðan var Óláfr skírðr ok andaðisk í hvítavoðum ok enn váru skírðir fleiri menn at þeirri veizlu. Þorkell var skírður þá er kristni var lögtekin á Íslandi og allir Vatnsdælar. Þorkell var skírðr þá er kristni var lögtekin á Íslandi ok allir Vatnsdǿlar. Þorkell var mikill höfðingi. Þorkell var mikill hǫfðingi. Hann lét kirkju gera á bæ sínum og hélt vel trú sína. Hann lét kirkju gera á bǿ sínum ok helt vel trú sína.
Bræður tveir bjuggu í Engihlíð í Langadal, Föstólfur og Þróttólfur. Brǿðr tveir bjuggu í Engihlíð í Langadal, Föstólfur ok Þróttólfr. Þeir voru miklir fyrir sér. Þeir váru miklir fyrir sér. Þeir tóku við manni til ásjá og vildu hann hafa í leynum, meðan þeir færu til þings, á Kili skammt frá Reykjavöllum en þeir mundu lúka málum hans. Þeir tóku við manni til ásjá ok vildu hann hafa í leynum, meðan þeir fǿri til þings, á Kili skammt frá Reykjavöllum en þeir mundu lúka málum hans.
Aðrir tveir bræður bjuggu að Móbergi í Langadal og hétu Húnröður og Úlfhéðinn, synir Véfreðar Ævarssonar hins gamla. Aðrir tveir brǿðr bjuggu at Móbergi í Langadal ok hétu Húnrøðr ok Úlfhéðinn, synir Véfreðar Ævarssonar ins gamla. Úlfhéðinn var vinsælli þeirra bræðra. Úlfhéðinn var vinsǽlli þeira brǿðra.
Þórólfur hét maður er kallaður var leikgoði. Þórólfr hét maðr er kallaðr var leikgoði. Hann var með þeim bræðrum. Hann var með þeim brǿðrum.
Úlfhéðinn var mikill vinur Hólmgöngu-Starra og það segja menn, þá er Þórarinn illi skoraði á hann til hólmgöngu, að Úlfhéðinn fór með honum til hólmstefnunnar og í þeirri ferð gerði að þeim veður illt og ætluðu þeir vera gerningaveður. Úlfhéðinn var mikill vinr Hólmgöngu-Starra ok þat segja menn, þá er Þórarinn illi skoraði á hann til hólmgöngu, at Úlfhéðinn fór með honum til hólmstefnunnar ok í þeiri ferð gerði at þeim veðr illt ok ǽtluðu þeir vera gerningaveðr.
Bárður hét maður og var kallaður stirfinn. Bárðr hét maðr ok var kallaðr stirfinn. Hann fór með þeim. Hann fór með þeim. Þeir báðu hann af taka veðrið því að hann var margkunnigur. Þeir báðu hann af taka veðrit því at hann var margkunnigr. Hann bað þá handkrækjast og gera hring. Hann bað þá handkrækjast ok gera hring. Síðan gekk hann andsælis þrisvar og mælti írsku. Síðan gekk hann andsælis þrisvar ok mǽlti írsku. Hann bað þá já við kveða. Hann bað þá já við kveða. Þeir gerðu svo. Þeir gerðu svá. Síðan veifði hann giska til fjalls og tók þá af veðrið. Síðan veifði hann giska til fjalls ok tók þá af veðrit.
Þeir Þróttólfur og Föstólfur fóru til þings sem fyrr segir en maðurinn var meðan í Þjófadal og vænti að þá mundi minna fé goldið ef hann færi eigi sjálfur. Þeir Þróttólfr ok Föstólfur fóru til þings sem fyrr segir en maðrinn var meðan í Þjófadal ok vǽnti at þá myndi minna fé goldit ef hann fǿri eigi sjálfr. Þeir riðu og til þings Húnröður og Þórólfur leikgoði. Þeir riðu ok til þings Húnrøðr ok Þórólfr leikgoði. Hross hlupu frá þeim skammt frá Reykjavöllum og leituðu víða og fundu eigi. Hross hljópu frá þeim skammt frá Reykjavöllum ok leituðu víða ok fundu eigi. Þeir sáu mann skammt frá sér og hugðu vera illmenni og hann mundi tekið hafa hross þeirra. Þeir sá mann skammt frá sér ok hugðu vera illmenni ok hann mundi tekit hafa hross þeira. Þeir fréttust og eigi fyrir og hlupu þegar að honum og drápu hann, riðu síðan til þings og sögðu þeim bræðrum Þróttólfi og Föstólfi. Þeir fréttusk ok eigi fyrir ok hljópu þegar at honum ok drápu hann, riðu síðan til þings ok sǫgðu þeim brǿðrum Þróttólfi ok Föstólfi. Þeim líkaði stórilla og beiddu bóta fyrir og kváðust sæst hafa við frændur hins vegna og grið tekið og síðan goldið fé fyrir hann. Þeim líkaði stórilla ok beiddu bóta fyrir ok kváðusk sǽst hafa við frǽndr ins vegna ok grið tekit ok síðan goldit fé fyrir hann. Húnröður kvaðst ætla að vera munu önnur fégjöld til skyldari og riðu við það af þinginu. Húnröður kvazk ætla at vera munu ǫnnur fégjǫld til skyldari ok riðu við þat af þinginu.
Þeir bræður keyptu land á Kólkumýrum er í Holti heitir. Þeir brǿðr keyptu land á Kólkumýrum er í Holti heitir.
Þorfinnur hét maður og bjó á Breiðabólstað í Vatnsdal, frændi þeirra. Þorfinnr hét maðr ok bjó á Breiðabólstað í Vatnsdal, frǽndi þeira. Hann átti ferð út á Skagaströnd og svo bar til að Úlfhéðinn fór út þangað og Þórólfur leikgoði með honum. Hann átti ferð út á Skagastrǫnd ok svá bar til at Úlfhéðinn fór út þangat ok Þórólfr leikgoði með honum. Og er þeir komu til Breiðavaðs hjá Blöndu riðu þeir Þorfinnur og bræðurnir Föstólfur og Þróttólfur seinna nokkuð. Ok er þeir kómu til Breiðavaðs hjá Blǫndu riðu þeir Þorfinnr ok bræðurnir Föstólfur ok Þróttólfr seinna nǫkkut.
Þeir Föstólfur kváðu vel á komið að finna Úlfhéðin " því að þeir bræður drápu mann okkarn í sumar og skal ríða eftir þeim. " Þeir Föstólfur kváðu vel á komit at finna Úlfhéðin " því at þeir brǿðr drápu mann okkarn í sumar ok skal ríða eftir þeim. "
" Eigi mun eg eftir ríða, " kvað Þorfinnur. " Eigi mun ek eftir ríða, " kvað Þorfinnr.
Og svo var. Ok svá var.
Síðan riðu þeir bræður eftir í ákefð. Síðan riðu þeir brǿðr eftir í ákefð.
Þetta sér Þórólfur leikgoði og mælti hann: " Ríðum undan hart. Þetta sér Þórólfr leikgoði ok mǽlti hann: " Ríðum undan hart. Hér fara þeir bræður eftir okkur. " Hér fara þeir brǿðr eftir okkr. "
" Nei, " kvað Úlfhéðinn, " það geri eg eigi því að þeir kalla mig þá renna. " " Nei, " kvað Úlfhéðinn, " þat geri ek eigi því at þeir kalla mik þá renna. "
Þórólfur hleypti út á ána en þeir bræður unnu á Úlfhéðni og lá hann þar eftir. Þórólfr hleypti út á ána en þeir brǿðr unnu á Úlfhéðni ok lá hann þar eftir. Síðan riðu þeir bræður aftur og sögðu Þorfinni tíðindin. Síðan riðu þeir brǿðr aftr ok sǫgðu Þorfinni tíðindin. Hann kvað ómaklega gert við góðan dreng og fór hann heim í Vatnsdal. Hann kvað ómaklega gert við góðan dreng ok fór hann heim í Vatnsdal.
Úlfhéðinn var særður til ólífis. Úlfhéðinn var sǽrðr til ólífis.
Húnröður fór eftir honum, bróðir hans, og flutti hann heim og bað hann Húnröð bróður sinn sættast á mál þessi eftir sig og kvað eigi hefnda mundu auðið verða " því að eg minnist nú á ferðina hina fyrri og veit eg þann engan sóttdauðan orðið hafa er í þeirri ferð voru. " Húnrøðr fór eftir honum, bróðir hans, ok flutti hann heim ok bað hann Húnrøð bróður sinn sǽttast á mál þessi eftir sik ok kvað eigi hefnda mundu auðið verða " því at ek minnist nú á ferðina ina fyrri ok veit ek þann engan sóttdauðan orðit hafa er í þeirri ferð váru. "
Síðan andaðist Úlfhéðinn en Húnröður lét ólíklega við sættinni og bjó málið til alþingis. Síðan andaðisk Úlfhéðinn en Húnrøðr lét ólíklega við sǽttinni ok bjó málit til alþingis. Þorfinnur bauð sætt og fébætur en Húnröður kvaðst eigi vilja nema sektir þeirra og svo varð og reið við það af þingi. Þorfinnr bauð sǽtt ok fébætur en Húnrøðr kvazk eigi vilja nema sektir þeira ok svá varð ok reið við þat af þingi. Þeir bræður gerðu virki mikið í Holti á Kólkumýrum og varð Húnröði torvelt að sækja þá. Þeir brǿðr gerðu virki mikit í Holti á Kólkumýrum ok varð Húnrøði torvelt at sǿkja þá.
Skúmur hét lausingi einn. Skúmr hét lausingi einn. Hann hafði aflað fjár og orðinn auðigur. Hann hafði aflat fjár ok orðinn auðigr. Húnröður eyddi fyrir honum og fór hann utan og kom til Noregs og fór norður í Þrándheim. Húnrøðr eyddi fyrir honum ok fór hann útan ok kom til Noregs ok fór norðr í Þrándheim. Hann fékk þar stórfé og dvaldist þar, kom auðigur í annan tíma. Hann fekk þar stórfé ok dvalðisk þar, kom auðigr í annan tíma. Húnröður eyddi öllum peningum sínum og svo þeim er Skúmur hafði átt svo að hann varð nálega félaus. Húnröður eyddi ǫllum peningum sínum ok svá þeim er Skúmur hafði átt svá at hann varð nálega félaus. Hann fór á fund Þorkels Vatnsdælagoða og sagði honum sín vandræði. Hann fór á fund Þorkels Vatnsdælagoða ok sagði honum sín vandrǽði.
Þorkell mælti: " Illt ráð hefir þú upp tekið að taka eigi bætur eftir bróður þinn þar sem hann sagði þér svo fyrir að þér mundi eigi annað hlýða og hefir þú nú hvorki fé né hefndir. Þorkell mǽlti: " Illt ráð hefir þú upp tekit at taka eigi bǿtr eftir bróður þinn þar sem hann sagði þér svá fyrir at þér myndi eigi annat hlýða ok hefir þú nú hvorki fé né hefndir. En fyrir það er þú hefir sótt mig heim að ráðum þá mun eg fara til með þér og leita um sættir. " En fyrir þat er þú hefir sótt mik heim at ráðum þá mun ek fara til með þér ok leita um sǽttir. "
Síðan hitti Þorkell þá bræður og spurði hvort þeir vildu sættast við Húnröð ef kostur væri. Síðan hitti Þorkell þá brǿðr ok spurði hvárt þeir vildu sǽttast við Húnrøð ef kostr vǽri. Þeir létu seinlega við og kváðu honum nú eigi betra að sættast en þá er honum var boðið. Þeir létu seinlega við ok kváðu honum nú eigi betra at sǽttast en þá er honum var boðit.
Þorkell mælti: " Nú skuluð þið gera annaðhvort, að fara utan sem mælt var ella mun eg engi ráð leggja til með yður. " Þorkell mǽlti: " Nú skuluð þit gera annaðhvort, at fara útan sem mǽlt var ella mun ek ekki ráð leggja til með yðr. "
Þeir kváðust hans orð mikils skyldu virða " og viljum við þig síst í móti okkur hafa. " Þeir kváðusk hans orð mikils skyldi virða " ok viljum við þik sízt í móti okkr hafa. "
Þeir fóru nú utan og komu í Þrándheim. Þeir fóru nú útan ok kómu í Þrándheim.
Þá mælti Þróttólfur: " Eigi skiptir það högum til að Húnröður, góður drengur, skal vera félaus orðinn og hlotið það mest af okkur en þræll hans Skúmur skal orðinn auðigur sem Njörður. " Þá mǽlti Þróttólfr: " Eigi skiptir þat hǫgum til at Húnrøðr, góðr drengr, skal vera félaus orðinn ok hlotit þat mest af okkr en þrǽll hans Skúmr skal orðinn auðigr sem Njǫrðr. "
Síðan fóru þeir og drápu hann en tóku fé hans allt og sendu Húnröði. Síðan fóru þeir ok drápu hann en tóku fé hans allt ok sendu Húnrøði.
Litlu síðar kom Þróttólfur út og fór á fund Þorkels kröflu og bað hann fylgja að sætt þeirra Húnröðar. Litlu síðar kom Þróttólfr út ok fór á fund Þorkels kröflu ok bað hann fylgja at sǽtt þeira Húnrøðar. Þorkell kvað svo vera skyldu. Þorkell kvað svá vera skyldu. Hann fer síðan á fund Húnröðar og með viturleika sínum og góðum vilja þá sætti hann þá heilum sáttum svo að hvorirtveggju undu vel við hans ummæli. Hann ferr síðan á fund Húnrøðar ok með viturleika sínum ok góðum vilja þá sǽtti hann þá heilum sáttum svá at hvárirtveggju undu vel við hans ummǽli.
Þorkell varð gamall maður og þá er hann lá í banasótt sinni stefndi hann til sín vinum sínum, frændum og þingmönnum. Þorkell varð gamall maðr ok þá er hann lá í banasótt sinni stefndi hann til sín vinum sínum, frǽndum ok þingmǫnnum.
Þorkell mælti þá: " Eg vil yður kunnigt gera að eg hefi fengið sjúkdóm nokkurn og þykir mér líklegt að hann muni skilja vorar samvistur og hafið þér vel hlítt minni forsjá og verið mér hlýðnir og eftirlátir og hafið þér þökk fyrir það. " Þorkell mǽlti þá: " Ek vil yðr kunnigt gera at ek hefi fengit sjúkdóm nokkurn ok þykkir mér líklegt at hann muni skilja vorar samvistur ok hafið þér vel hlítt minni forsjá ok verit mér hlýðnir ok eftirlátir ok hafið þér þǫkk fyrir þat. "
Eftir það andaðist hann og var mjög harmdauði þingmönnum sínum og öllum héraðsmönnum því að hann þótti sem var hinn mesti héraðshöfðingi og mikill giftumaður og hinn líkasti hinum fyrrum Vatnsdælum svo sem Þorsteini og Ingimundi og bar Þorkell það fyrir að hann var rétttrúaður maður og elskaði guð og bjóst mjög kristilega við dauða sínum. Eftir þat andaðisk hann ok var mjǫk harmdauði þingmǫnnum sínum ok ǫllum héraðsmönnum því at hann þótti sem var inn mesti héraðshöfðingi ok mikill giftumaður ok inn líkasti inum fyrrum Vatnsdǿlum svá sem Þorsteini ok Ingimundi ok bar Þorkell þat fyrir at hann var rétttrúaðr maðr ok elskaði guð ok bjósk mjǫk kristilega við dauða sínum.
Og gerum vér þar enda á Vatnsdæla sögu. Ok gerum vér þar enda á Vatnsdǿla sǫgu.