Bókastaðir

The Icelandic Sagas, glossed
Chapter 66

Snorri goði átti nítján börn frjálsborin þau er úr barnæsku komust. Snorri goði átti nítján bǫrn frjálsborin þau er ór barnǿsku kómusk. Þórður kausi var elstur, annar Þóroddur, þriðji Þorsteinn, fjórði Guðlaugur munkur. Þórðr kausi var elztr, annarr Þóroddr, þriði Þorsteinn, fjórði Guðlaugr munkur. Þeir voru synir Ásdísar Víga-Styrsdóttur. Þeir váru synir Ásdísar Víga-Styrsdóttur. Fimmta var Sigríður, sétta Unnur. Fimmta var Sigríðr, sétta Unnr. Þær voru dætur Þuríðar, dóttur Illuga hins rauða. Þǽr váru dǿtr Þuríðar, dóttur Illuga ins rauða. Sjöundi Kleppur, áttunda Halldóra, níunda Þórdís, tíunda Guðrún, ellefti Halldór, tólfti Máni, þrettándi Eyjólfur, fjórtánda Þóra, fimmtánda Hallbera, sextánda Þuríður, sautjándi Þorleifur, átjánda Ólöf, nítjándi Snorri. Sjöundi Kleppr, áttunda Halldóra, níunda Þórdís, tíunda Guðrún, ellefti Halldór, tólfti Máni, þrettándi Eyjólfr, fjórtánda Þóra, fimmtánda Hallbera, sextánda Þuríðr, sautjándi Þorleifr, átjánda Ólǫf, nítjándi Snorri. Hann var fæddur eftir föður sinn. Hann var fǿddr eftir fǫður sinn. Þessi voru börn Hallfríðar Einarsdóttur. Þessi váru bǫrn Hallfríðar Einarsdóttur. Snorri goði átti þrjú börn þýborin. Snorri goði átti þrjú bǫrn þýborin. Sá hét annar Þórður kausi, Jörundur og Þórhildur. Sá hét annarr Þórðr kausi, Jǫrundr ok Þórhildr.

Snorri goði var fjórtán vetra er hann fór utan. Snorri goði var fjórtán vetra er hann fór útan. Hann var utan einn vetur. Hann var útan einn vetr. Hinn næsta vetur er hann kom út var hann að Helgafelli með Berki hinum digra föðurbróður sínum og Þórdísi móður sinni. Inn nǽsta vetrinn er hann kom út var hann at Helgafelli með Berki inum digra fǫðurbróður sínum ok Þórdísi móður sinni. Þetta haust drap Eyjólfur hinn grái, sonur Þórðar gellis, Gísla Súrsson og þetta vor eftir er Snorri var sextán vetra gamall gerði hann bú að Helgafelli og bjó þar tuttugu og þrjá vetur áður kristni var í lög tekin á Íslandi en þaðan frá bjó hann átta vetur að Helgafelli. Þetta haust drap Eyjólfr inn grái, son Þórðar gellis, Gísla Súrsson ok þetta vor eftir er Snorri var sextán vetra gamall gerði hann bú at Helgafelli ok bjó þar tuttugu ok þrjá vetr áðr kristni var í lǫg tekin á Íslandi en þaðan frá bjó hann átta vetr at Helgafelli. Og á þeim síðasta vetri drap Þorgestur Þórhallsson Víga-Styr, mág Snorra goða, á Jörva í Flisuhverfi. Ok á þeim síðasta vetri drap Þorgestr Þórhallsson Víga-Styr, mág Snorra goða, á Jörva í Flisuhverfi. Síðan fór hann búi sínu í Sælingsdalstungu og bjó þar tuttugu vetur. Síðan fór hann búi sínu í Sǽlingsdalstungu ok bjó þar tuttugu vetr. Hann lét kirkju gera að Helgafelli en aðra í Tungu í Sælingsdal. Hann lét kirkju gera at Helgafelli en aðra í Tungu í Sǽlingsdal. En sumir segja að hann léti gera í annað sinn að Helgafelli með Guðrúnu kirkju þá er sú brann er hann hafði gera látið. En sumir segja at hann léti gera í annat sinn at Helgafelli með Guðrúnu kirkju þá er sú brann er hann hafði gera látit.

Hann andaðist úr sótt á hinum sjöunda vetri hins sjöunda tigar aldurs síns. Hann andaðisk ór sótt á inum sjöunda vetri ins sjöunda tigar aldrs síns. Það var einum vetri eftir fall Ólafs konungs hins helga. Þat var einum vetri eftir fall Óláfs konungs ins helga. Og var Snorri goði grafinn heima þar í Sælingsdalstungu að þeirri kirkju er hann sjálfur hafði gera látið. Ok var Snorri goði grafinn heima þar í Sǽlingsdalstungu at þeirri kirkju er hann sjálfr hafði gera látit. Hann er orðinn stórum kynsæll því að til hans telja ættir flestir hinir göfgustu menn á Íslandi og Bjarkeyingar á Hálogalandi, Götuskeggjar í Færeyjum og mart annað stórmenni það er hér eigi er talt, bæði á þessu landi og öðrum. Hann er orðinn stórum kynsǽll því at til hans telja ǽttir flestir inir gǫfgustu menn á Íslandi ok Bjarkeyingar á Hálogalandi, Gǫtuskeggjar í Fǽreyjum ok mart annat stórmenni þat er hér eigi er talt, bǽði á þessu landi ok ǫðrum.